Vesturbakki 13, Þorlákshöfn
Fullbúið 72 m² lager, geymslu- eða hobbýbil á góðum stað skammt frá höfninni í Þorlákshöfn.
Vantar þig örugga geymslu fyrir hjólhýsið, húsbílinn, bátinn eða bílinn? Kannski meira pláss fyrir fyrirtækið, lagerinn, tækin eða áhugamálið?
Vesturbakki býður upp á rúmgott og fjölnota rými með mikilli lofthæð og stórri innkeyrsluhurð sem er tilvalið fyrir þau sem vilja almennilega aðstöðu og meira pláss.
72 m²
4,35 m innkeyrsluhurð
Mikil lofthæð
Gólfhiti
3ja fasa rafmagn
Malbikuð lóð
Pláss sem þú getur gert að þínu
Með 4,35 m hárri innkeyrsluhurð, rúmgóðu 72 m² rými og góðri aðkomu er Vesturbakki frábær kostur fyrir þau sem vilja geyma stærri farartæki og búnað innandyra.
Hér getur hjólhýsið átt sitt fasta heimili yfir veturinn og enn verið pláss fyrir verkfæri, útivistarbúnað og annað sem fylgir ferðalögunum.
Hjólhýsið eða húsbíllinn. Báturinn. Fornbíllinn. Mótorhjólin. Lagerinn. Verkstæðið.
Mikil lofthæð gefur jafnframt möguleika á að bæta við millilofti og nýta rýmið enn betur.




Fyrir ferðalagið, áhugamálið eða reksturinn?
Pláss fyrir hjólhýsið yfir veturinn.
Pláss fyrir bílinn sem á ekki að standa úti.
Pláss fyrir mótorhjólin, verkfærin og græjurnar.
Pláss fyrir lagerinn og reksturinn.
Vesturbakki 13
72 m² geymslu- og hobbýbil í Þorlákshöfn
Verð: 24.900.000 kr.