Loðmundartangi 13, 15, 17
Fallegt og fullbúið 4 herbergja
raðhús á frábærum stað á Flúðum.
Loðmundartangi 13, 15, 17 er 132,1 m² nýbygging með 33,5 m² innbyggðum bílskúr, eignin er hönnuð með áherslu á þægindi, vönduð efni og fagurfræði í fararbroddi.
Eignin er tilbúin til afhendingar og afhendist fullbúin að utan sem innan samkvæmt skilalýsingu með gólfefnum, vönduðum ítölskum innréttingum, eldhústækjum og heitum potti.
Hér getur þú einfaldlega flutt inn og byrjað að njóta.
4 herbergi
33,5 m² bílskúr
Heitur pottur
Tilbúið til afhendingar
Vönduð smáatriði
Hlýlegt og tímalaust efnis- og litaval skapa heimilislegt og fágað yfirbragð.
Veggir eru fullmálaðir í Soft Sand frá Sérefni og yfirfelldar innihurðar sprautaðar í sama lit og veggir. Á gólfum er Victoria Ivory parket í stofu, eldhúsi og svefnherbergjum og Terra Crea Corda flísar frá Kronos í forstofu, þvottahúsi og baðherbergi.
Hljóðdúkur í loftum helstu rýma eykur enn frekar á notalegt yfirbragð og hljóðvist heimilisins.














Þar sem eldhúsið er hjarta heimilisins
Eldhúsið er bjart og glæsilegt með ítalskri gæðainnréttingu frá Scavolini og fallegri kvarts borðplötu frá S. Helgasyni í litnum Luna.
Eldhúsið afhendist fullbúið með tækjum frá Rafha:
Ofn
Spanhelluborð
Innbyggð vifta
Uppþvottavél
Ísskápur
Frystiskápur
Samspil hvítrar innréttingar, hlýrra gólfefna og ljósrar borðplötu skapar tímalaust rými sem fellur vel að opnu og björtu heimilinu.
Þægindi í hversdagsleikanum eða afdrep í fríinu?
Skipulag eignarinnar er einfalt og fjölskylduvænt með góðri nýtingu á fermetrunum.
Forstofa
Fataskápur og innangengt í rúmgóðan bílskúr.
Svefnherbergi
Vandaðir viðarlitaðir fataskápar samkvæmt teikningum.
Baðherbergi
Falleg innrétting með skúffum og vaski, innbyggður salerniskassi og rúmgóð sturta með sturtugleri.
Þvottahús
Innrétting með vaski ásamt tengingum fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð.
Bílskúr
33,5 m² sambyggður og málaður bílskúr með slitsterku epoxy kvarts gólfi og beinu aðgengi inn í húsið.
Heitur pottur
Við stofuna er heitur pottur með plug & play búnaði, hitastýringu og WiFi-tengingu.
Fullkominn staður til að enda daginn, hvort sem það er eftir vinnu, útiveru eða góðan dag í sveitinni.










Nútímalegt og viðhaldslítið
Húsið er timburhús, klætt að utan með litaðri smábáru og standandi timburklæðningu.
Svört stálklæðning er á þaki, vindskeiðar úr svörtu timbri og álrennur innfelldar. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré og mynda fallega heild með dökku og nútímalegu yfirbragði hússins.
Skilveggir milli húsa verða frágengnir að framanverðu.
Vandaður frágangur og falleg hönnun
Loðmundartangi 13, 15, 17 sameinar nýbyggingu, vandaðan frágang, fallega hönnun og þægindi á rólegum stað við Flúðir.
Engar framkvæmdir. Engin bið eftir innréttingum eða gólfefnum.
Fullbúið heimili – tilbúið fyrir næsta eiganda.
Hefur þú áhuga?
Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um eignina, verð og skoðun.
Nánari upplýsingar
Seljandi greiðir gatnagerðargjald, byggingarleyfis- og stofngjöld holræsa ásamt inntaksgjöldum rafmagns, hitaveitu og kaldavatns.
Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald þegar það er lagt á við endanlegt brunabótamat.
Eignin afhendist fullbúin að utan og innan samkvæmt skilalýsingu. Nánari upplýsingar um endanlegan frágang, búnað og skilmála koma fram í skilalýsingu og kaupgögnum.